MF 6400/7400
Vörulýsing
Fleiri myndir
Senda til vinar
Gagnrýni
MF 6400/7400
Þessar tvær línur traktora í MF fjölskyldunni eru tæknilega afar fullkomnar vélar.
Aflvélar.
Í 6400 vélarnar eru notaðir Perkings mótorar í þær minni og Sisu mótorar í þær stærri en í 7400 eru eingöngu Sisu mótorar ,báðar þessar mótorgerðir eru með svokölluðu fjölinnsprautukerfi (common rail), 4 ventlar á hvern cylinder, allar Turbo-Intercooled, ýmist fjögurra eða sex strokka, vélarnar eru teknar með vatnshitara í blokk og yfirstærð af rafal og startmótor
Gírkassar:
MF 6400 línan er búin hinum velþekkta Dyna-6 gírkassa þ.e. forritanlegur vökvaþrepaskiptur kassi með vökvavendigír, 7400 línan er hins vegar með stiglausum Dyna_VT gírkassa (stepless speed)
Vökvakerfi.
Margar útfærslur eru í boði varðandi vökvakerfið, en í grunnin eru þær sem við bjóðum með 4 vökvaspólum, tvær rafstýrðar í hægri armhvílu og hinar tvær í stöngum, einnig er hægt að fá þær allar rafstýrðar í smáhnöppum (fingertip). Vökvakerfið er álagsstýrt (load sensing), dæluafköst 100l/min eða meira, hægt að fá vökvastjórnun á vökvaspólum úti, stjórntakkar fyrir afturbeisli í afturbrettum.
Aflúrtak.
540/750/1000 sn aflúrtak með 6 og 21 rillu öxlum, búnaður til að létta bremsu af aflúrtaki v/tengingu drifskafts, start/stopp hnappar í afturbretti.
Annað.
Afar vandað vel hljóðeinangrað 70 d(B)A fjaðrandi ökumannshús, loftkæling, loftpúðasæti, farþegasæti, afturrúðuþurrka, fullkomin vinnuljósabúnaður, vinnutölva (Datatronic 3) sem gefur möguleika á upplýsingaskráningu, minnisgeymslu v/stillinga á tengitækjum, bakkmyndavél og margt fl., fjaðrandi framöxull (Quadlink) fáanlegur og hinar ýmsu dekkaútfærslur. Beislisbúnaður hefðbundin ýmist cat 2 eða cat 3 eftir stærð vélanna, vökvaskotkrókur og margt. fl.









