Valtra N-lína

Skođa stćrri mynd

 
Vörulýsing
Fleiri myndir
Senda til vinar
Gagnrýni
Valtra N-lína
Hér er á ferðinni tæknilega fullkomin traktor í nokkrum útfærslum.
Þetta er nýjasti meðlimurinn í Valtra fjölskyldunni og er útgangspunkturinn við hönnun þessarar vélar er kraftmikill,fullkomin traktor sem virkar vel með ámoksturstækjum.
Meginmunur vélanna er útfærsla gírkassa, en fjórar gerðir eru í boði.                               
Hi-Tec gírkassaútfærslan er búin 4 hraðastigum/þremur drifum/þremur vökvagírum 36/36 auk vökvavendigírs.
Advance útfærslan er í grunnin eins nema rafstýring er notuð til að skipta drifum.
Versu er fjögurra gíra, fimm vökvaþrepa kassi 20F/20R, forritanlegur
Direct gírkassinn er stiglaus (stepless), hannaður og smíðaður af Valtra, þetta er afar fullkomin gírkassi þar sem leitast hefur verið við að hafa allar stjórnskipanir einfaldar og markvissar.
N-línan er með fjögurra strokka Sisu Dieselvélum frá 88/hö til 150/hö, öflugu vökvakerfi, annars vegar í hefðbundinni útfærslu með stjórnstöngum, hins vegar í Advance útfærslu með öflugri vökvadælu og rafstjórnun.

Vinnuumhverfi stjórnandans er eins og best verður á kosið, húsið er afar hljóðlátt (68,5db), niðursveigt húdd tryggir góða yfirsýn við notkun ámoksturstækja, stórar dyr ásamt vel hönnuðum þrepum gera umgang inn og út úr stýrishúsinu með því besta sem þekkist í dráttarvélum, farþegasæti er til hliðar við ökumann, loftkæling er staðalbúnaður , fáanleg er húsfjöðrun auk framfjöðrunar.

Sjá nánar á heimasíðu Valtra

  
*
  
  
*

Ruslpóstvörn Vinsamlegast sláđu inn tölurnar á myndinni hér ađ neđan.

  Redraw

Tölur: